Bílar

Heimsókn í sérstæða bílaverksmiðju

Þar eru einungis handsmíðaðir 57 bílar á dag.Ein sérstakasta bílaverksmiðja heims var heimsótt um daginn af visir.is. Þar eru dýrasti bíll Volkswagen handsmíðaður, þ.e. forstjórabíllinn Volkswagen Pheaton fyrir augunum á mýmörgum gestum sem þangað koma.

Verksmiðjan er öll byggð úr stáli og gleri og er því gegnsæ. Þangað koma gjarnan líka kaupendur bílanna og taka þátt í smíði eigin bíls í einn dag og svo aftur þegar bíll þeirra er tilbúinn til afhendingar.

Í meðfylgjandi myndskeiði er einnig fjallað um minnsta bíl Volkswagen, up! Sjón er sögu ríkari.






×