Körfubolti

James sjóðheitur er Miami lagði Lakers

Meistarar Miami Heat unnu stórslaginn gegn LA Lakers í NBA-deildinni í nótt. Jafnræði var með liðunum lengi vel en Heat sigldi sigrinum í höfn undir lokin.

LeBron James skoraði 39 stig fyrir Heat í leiknum en það er hans besta í vetur. "Hann er einn sá besti sem við höfum séð," sagði Kobe Bryant um James eftir leikinn.

Kobe hitti aðeins úr 3 af 18 skotum sínum er 10 mínútur voru eftir. Þá datt hann í gírinn, skoraði fjórar körfur í röð og kom Lakers yfir, 83-81. Það dugði ekki til og Bryant endaði leikinn með 22 stig.

Úrslit:

Detroit-NY Knicks 81-102

Minnesota-LA Clippers 77-90

Phoenix-Milwaukee 94-98

LA Lakers-Miami 90-99



NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×