Körfubolti

Durant skoraði 52 stig gegn Dallas

Durant og Westbrook.
Durant og Westbrook.
Kevin Durant fór algjörlega hamförum með Oklahoma gegn Dallas í nótt og setti persónulegt met er hann skoraði 52 stig í mögnuðum 117-114 sigri Oklahoma í frábærum leik sem var að framlengja.

Þetta var sjötti sigur Oklahoma í röð og þeir stöðvuðu um leið fjögurra leikja sigurgöngu Dallas. Russell Westbrook einnig magnaður með 31 stig og Serge Ibaka skoraði 11 og tók 14 fráköst.

Vince Carter stigahæstur hjá Dallas með 29 stig. Dirk Nowitzki og OJ Mayo skoruðu báðir 18 stig.

Úrslit:

Boston-Chicago 99-100

Philadelphia-Toronto 108-101

Orlando-Charlotte 100-106

Indiana-Houston 105-95

Brooklyn-Atlanta 94-89

Memphis-Sacramento 85-69

San Antonio-Golden State 95-88

Denver-Washington 108-112

Dallas-Oklahoma 114-117

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×