Tíska og hönnun

Rautt og röndótt hjá Michael Kors

Michael Kors býður upp á fallega og skemmtilega vortísku.
Michael Kors býður upp á fallega og skemmtilega vortísku.
Það var litrík og skemmtileg stemmning á tískupöllunum í París þegar Michael Kors sýndi vorlínuna fyrir 2013 á tískuvikunni í haust. Þverar rendur, sterkir litir og munstur voru áberandi og lituð sólgleraugu í stíl. Einnig var glamúrinn áberandi en hann hefur verið það undanfarið og verður það áfram mörgum til mikillar ánægju.
Rauði liturinn verður sjóðandi heitur næsta vor.

Glamúrinn mun halda ótrautt áfram með vorinu.

Sterkir litir og stór munstur verða áberandi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×