Tíska og hönnun

Eldheitar í sundfatatísku Victoria's Secret

MYNDIR / COVER MEDIA
Sundfatakatalógur Victoria's Secret fyrir vorið 2013 er kominn út og er það ofurfyrirsætan Candice Swanepoel sem prýðir forsíðuna.

Suður-afríska-fyrirsætan er ekki sú eina sem sýnir kroppinn í efnislitlum sundfötum heldur prýða fyrirsætur á borð við Behati Prinsloo, Miranda Kerr, Doutzen Kroes, Karlie Kloss, Erin Heatherton og Lais Ribeiro líka síður vörulistans.

Forsíðumyndin.
Candice er ánægð með að vera á forsíðunni en myndirnar tók Russell James.

Candice buslar.
"Það er æðislegt að sjá sjálfa mig á forsíðunni. Það er heiður," segir Candice. Þetta er í þriðja sinn sem hún tekur þátt í katalógnum sem hefur verið gefinn út árlega í sextán ár.

Lais Ribeiro í gulu bikiníi.
Þú gætir unnið - vertu með okkur á Facebook.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×