Tónlist

Úr herbergi í stúdíó Sigur Rósar

Rafhljómsveitin RetRoBot, sigurvegari Músíktilrauna 2012, gefur á morgun út nýja lagið Insomnia og myndband við það.

"Þetta er það lag sem við höfum lagt mest í," segir Daði Freyr Pétursson meðlimur RetRoBot. Sveitin gaf út smáskífuna Blackout á haustdögum sem hefur fengið góðar viðtökur. Hún er tekin upp í heimahúsi ólíkt nýja laginu, sem var tekið upp í Sundlauginni, hljóðveri Sigur Rósar. "Blackout er öll tekin upp í herberginu mínu og hér og þar en við nýttum hljóðverstímana sem við unnum í Músíktilraunum núna," segir Daði. "Pétur Ben var með okkur allan tímann og var að hjálpa okkur að fikta með "gítareffekta" og svo vorum við með hljóðmann. Við lögðum mikið í þetta lag og nýttum fullt af hljóðfærum."

Mikil vinna býr einnig að baki myndbandinu. "Það fjallar um náunga sem breytir öllu sem hann snertir í teiknimyndir." En hvernig er það hægt? "Ég er í raun bara að teikna hvern ramma fyrir sig. Þetta er búið að taka mjög langan tíma en þetta fer að klárast," sagði Daði, sem var á fullu að klippa myndbandið fyrir helgi.- hþt

Hér má sjá myndbandið við nýja lagið.


Tengdar fréttir

Elektró-indí frá Árborg

Retrobot er selfysskur kvartett ungra pilta sem vöktu talsverða athygli á árinu þegar þeir sigruðu Músíktilraunir. Þrátt fyrir að rekja uppruna sinn til Selfoss spilar Retrobot ekki sveitaballatónlist í neinum hefðbundnum skilningi – þótt sveitin hafi reyndar spilað á 800 Bar. Skömmu síðar brann 800 Bar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.