Gagnrýni

Enn meira Eurovision

Björn Teitsson skrifar
Greta Salóme. In the Silence.
Greta Salóme. In the Silence.
Tónlist. Greta Salóme. In the Silence. Sena

Greta Salóme varð skyndilega þjóðþekkt í byrjun ársins 2012 þegar hún kom tveimur lögum inn í hina íslensku forkeppni Eurovision. Annað þeirra, „Mundu eftir mér/Never Forget," fór síðan alla leið til Aserbaídsjan í lokakeppnina. In the Silence er fyrsta breiðskífa Gretu, en Eurovision-sérfræðingurinn Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson var henni innan handar.

Platan inniheldur tíu ný lög, en þar að auki fá bæði Eurovision-lög Gretu að fljóta með, lagið sem lenti í 20. sæti í Bakú í íslenskri sem enskri útgáfu. Þar fyrir utan eru allir textar á ensku en öll lög og allir textar eru eftir Gretu. Í viðtali fyrir útgáfu In the Silence, sem birtist á vef Senu, sagði Greta að hún hefði ákveðið „að fara í allt aðra átt" eftir Eurovision. Það er ekki auðséð hvað hún átti við með því, vegna þess að platan gæti þess vegna verið heil undankeppni í Eurovision! Lögin eru annað hvort ballöður (If You Wanna Go, a Thousand More Goodbyes, Coming Home Soon) eða lög í rólegri kantinum sem stækka síðan og stækka með tilheyrandi dramatískum strengjaútsetningum. Trommuleikurinn er einnig með áberandi „Euro-bíti" (backbít inn á 2 og 4), eða að minnsta kosti í þeim lögum sem fara ekki í ballöðuflokkinn.

Að þessu sögðu þá liggur beint við að markhópurinn er Eurovision-aðdáendur. Fá þeir í raun allt sem þeir vilja á þessari plötu. Hér þarf sko að kreppa hnefann til að syngja með viðlögunum. Það er búið að leggja mjög mikla vinnu í verkið – Gretu segir sjálf að platan hafi verið í vinnslu allt frá því í febrúar. Hér er öllum brögðum beitt til að fá sem stærstan hljóm; raddanir, yfirupptökur, strengir og alls kyns takkafikt. En fyrir þá sem eru ekki aðdáendur Eurovision er hér á ferðinni plata sem er mun meiri umbúðir en innihald.

Niðurstaða: Eurovision-aðdáendur fá tónlist fyrir allan peninginn, aðrir ekki.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×