Lífið

Tónlist í jólapakkann

MARGAR FLOTTAR ÚTGÁFUR 25 ára afmælistónleikar Nýdanskrar eru dæmi um glæsilegan tónlistarpakka.
MARGAR FLOTTAR ÚTGÁFUR 25 ára afmælistónleikar Nýdanskrar eru dæmi um glæsilegan tónlistarpakka.
Það var mikið gert grín að dómnefnd Rannsóknarseturs verslunarinnar í fyrra þegar hún valdi spjaldtölvu sem jólagjöf ársins. Í ár vandaði dómnefndin sig greinilega meira og valdi íslenska tónlist sem jólagjöf ársins. Flott val sem auðvelt er að færa góð rök fyrir.

Í fyrsta lagi er verðið mjög viðráðanlegt og svo er árið 2012 líka búið að vera mjög gott ár fyrir íslenska tónlist. Það hefur sjaldan eða aldrei komið út jafn mikið af góðum plötum. Gæðaplötur ársins skipta tugum og það er eitthvað í boði fyrir alla. Plötur Ásgeirs Trausta, Retro Stefson, Moses Hightower og Hjaltalín eru dæmi um plötur sem hafa slegið í gegn, en það eru mjög margar fleiri flottar plötur í popp-, rokk- og jaðardeildinni eins og sést í árslistavali tónlistarspekúlanta hér í blaðinu.

Og það er margt annað í boði. Gamlir jaxlar eins og Mannakorn, Magnús og Jóhann og Bubbi komu t.d. með fínar plötur á árinu og í djassdeildinni er hægt að velja um plötur frá adhd, Skúla Sverris & Óskari Guðjóns og Stórsveit Samúel J. Samúelssonar svo eitthvað sé nefnt. Og svo eru það sparipakkarnir.

Í boði eru m.a. mjög glæsilegir ferilspakkar með Ríó Tríó (3 plötur og DVD-diskur), Andreu Gylfa, Megasi og Jet Black Joe og svo voru nokkrir af stórtónleikum ársins gefnir út: Þar á meðal eru Stuðmenn í Hörpu, Minningartónleikarnir um Elly Vilhjálms og 25 ára afmælistónleikar Nýdanskrar.

Síðastnefndu tónleikarnir voru algerlega frábærir. Hljómsveitin spilaði ekki bara bestu lögin sín heldur bryddaði upp á ýmsum nýjungum, fékk t.d. gesti til að flytja sum laganna. Þar á meðal voru KK, Hjaltalín og Unnsteinn úr Retro Stefson. Með afmælisútgáfunni fylgir líka aukadiskur með endurgerðum nokkurra listamanna á sígildum smellum með sveitinni. Flottur pakki!






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.