Deadline hefur trú á Djúpinu 19. desember 2012 06:00 djúpið Á föstudaginn verður tilkynnt um hvort djúpið kemst í fimmtán mynda úrtakið.
Djúpið er ein af fimmtán kvikmyndum sem bandaríska vefsíðan Deadline.com segir að sé líkleg til að komast í fimmtán mynda úrtak fyrir tilnefningarnar til Óskarsverðlaunanna. Tilkynnt verður um fimmtán mynda úrtakið á föstudaginn. Úr því verða fimm myndir valdar í lokaúrtakið sem keppir um Óskarinn. Í umfjöllun Deadline segir að leikstjórinn Baltasar Kormákur hafi þegar skapað sér nafn í Hollywood með spennumyndinni Contraband og að 2 Guns sé væntanleg frá honum með Mark Wahlberg og Denzel Washington í aðalhlutverkum. Alls er 71 kvikmynd að keppa um þessi fimm Óskarstilnefningasæti. Meðal hinna myndanna fjórtán sem Deadline skrifar um eru hin franska The Intouchables, Amour, sem vann Gullpálmann í Cannes, A Royal Affair frá Danmörku og The Hypnotist frá Svíþjóð. Aðeins ein íslensk mynd í fullri lengd hefur verið tilnefnd til Óskarsverðlaunanna. Það var Börn náttúrunnar árið 1992. -fb
Lífið Menning Mest lesið Rauðhærðir í brennidepli á vel sóttum írskum dögum Lífið Jon Landau er látinn Bíó og sjónvarp Eins söguleg og skáldsaga getur orðið Lífið Laufey í banastuði í Reykjavík Lífið Sauð upp úr í stjörnufansi á golfmóti Coolbet Lífið Emmsjé Gauti laumaði sér á Landsmót fyrir tónlistarmyndband Lífið „Þetta er enginn helvítis félagskvíði, það bara þolir mig enginn“ Áskorun Setti sér markmið og hóf veitingarekstur átján ára Lífið Alltaf sótt í orku og gleði í klæðaburði Tíska og hönnun „Þú gleymir fólki sem þú hefur elskað allt þitt líf“ Lífið Fleiri fréttir Fjöldamet á stærstu listasýningu í sögu Hornafjarðar „Hluti af heild sem við skiljum ekki“ Magnús Geir endurráðinn þjóðleikhússtjóri „Ef ég væri einmana myndi ég ganga í Sjálfstæðisflokkinn“ Myndaveisla: Níu líf of stórkostleg fyrir eftirsjá Þau eru tilnefnd til Ísnálarinnar í ár Hvað eigum við að kalla eiginmann forseta? Sjá meira