Lífið

Romeo Beckham heillar í Burberry-auglýsingu

sjaldan fellur eplið… Romeo Beckham þykir hafa erft tískuvit móður sinnar, Victoriu Beckham, en hann er nýjasta andlit Burberry. Nordicphotos/getty
sjaldan fellur eplið… Romeo Beckham þykir hafa erft tískuvit móður sinnar, Victoriu Beckham, en hann er nýjasta andlit Burberry. Nordicphotos/getty
Í nýjustu auglýsingaherferð breska tískuhússins Burberry stelur ungur herramaður senunni en hann á ekki langt að sækja hæfileikana. Um er að ræða miðson Victoriu og Davids Beckham, Romeo Beckham. Hann er nýjasta andlit Burberry og þykir fara á kostum í herferðinni sem var frumsýnd í vikunni.

Romeo er tíu ára gamall og heillaði alla upp úr skónum er tökur á auglýsingunni fóru fram um miðjan október. Hinir frægu foreldrar hans voru ekki á staðnum heldur mætti kappinn í fylgd öryggisvarða og barnapíu sinnar. Það var yfirhönnuður Burberry, Christopher Bailey, sem valdi Romeo sérstaklega í verkefnið en hann er góður vinur Beckham-hjónanna sem og ljósmyndarinn kunni Mario Testino sem var á bak við linsuna.

Romeo þykir hafa erft tískuvit móður sinnar, sem hefur fengið lof fyrir eigin hönnun undanfarin misseri. Hann fylgir gjarna móður sinni í myndatökur og hefur sterkar skoðanir á eigin fatastíl þrátt fyrir ungan aldur.

Victoria og David Beckham hafa eflaust getað gefið syni sínum góð ráð en bæði hafa þau góða reynslu af myndatökum og auglýsingaherferðum. Þessa dagana má til dæmis sjá knattspyrnukappann fáklæddan auglýsa eigin undirfatahönnun fyrir Hennes & Mauritz.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×