Lífið

Fjölskyldumaður

Eyddi degi með börnunum Mick Jagger kastaði mæðinni eftir tónleika með safnaferð ásamt börnum sínum. 
Nordicphotos/getty
Eyddi degi með börnunum Mick Jagger kastaði mæðinni eftir tónleika með safnaferð ásamt börnum sínum. Nordicphotos/getty
Söngvarinn síungi Mick Jagger fagnaði því að hafa lokið tónleikaröð í tilefni af 50 ára afmæli sveitarinnar Rolling Stones með því að taka allsherjar fjölskyldudag í New York.

Rokkarinn reyndi að fara huldu höfði er hann hélt af stað með fjögur af sjö börnum sínum í skemmtiferð á náttúrugripasafnið í New York. Með í för voru þau Georgia May, Lizzie og James, sem Jagger á með fyrirsætunni Jerry Hall, og hinn þrettán ára gamli Lucas sem söngvarinn á með brasilísku fyrirsætunni Luciana Gimenez. Nýafstaðin tónleikaröð Rolling Stones í New York vakti mikla lukku og tróðu meðal annars Lady Gaga, John Mayer, The Black Eyed Peas og Bruce Springsteen upp með sveitinni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×