Tónlist

Ekkert áfengi fyrir tónleikana

mika Tónlistarmaðurinn Mika spilar í Silfurbergi í Hörpu í kvöld.
nordicphotos/getty
mika Tónlistarmaðurinn Mika spilar í Silfurbergi í Hörpu í kvöld. nordicphotos/getty
Hollustan er í fyrirrúmi í búningsklefa tónlistarmannsins Mika fyrir tónleika hans í Hörpu í kvöld, samkvæmt heimildum Fréttablaðsins.

Ekkert áfengi er á kröfulista hans fyrr en eftir tónleikana og þá vill hann, ásamt samstarfsfólki sínu, einungis bjór og léttvín. Í staðinn er óskað eftir gosdrykkjum og vatni fyrir tónleikana, auk þess sem ávextir, grænmeti, brauð og alls kyns góðar áleggstegundir verða á boðstólum.

Sex manna hljómsveit verður með Mika á sviðinu. Íslenskur kór mun einnig stíga á svið með honum og syngja í einhverjum lögum, enda áttu aðdáendur hans að senda Mika myndbönd með sér að syngja lög hans svo hann gæti valið úr rétta fólkið.

Mika, sem lenti á Íslandi á miðnætti, hefur verið með barkabólgu að undanförnu og þurfti hann að aflýsa tónleikum sínum í Glasgow á sunnudaginn vegna veikindanna. Svo virðist sem hann hafi viljað hvíla röddina fyrir tónleikana á Íslandi en þetta verður í fyrsta sinn sem hann spilar hérlendis.

Í herbúðum Mika er mikill áhugi fyrir landi og þjóð og hefur fylgdarlið hans mikið spurt út í norðurljósin og hvort langt sé að fara að sjá Gullfoss og Geysi.

Eins og Fréttablaðið hefur greint frá hitar Páll Óskar upp fyrir Mika og því má búast við sjóðheitum áhorfendasal þegar Mika stígur á svið í kvöld. - fb






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.