Lífið

Býr til myndir úr hljóðum og texta

fridrikab@frettabladid.is skrifar
Öðruvísi vinna Hrafnhildur segir töluverðan mun á því að skrifa leikrit fyrir útvarp og fyrir svið.Fréttabaðið/Valli
Öðruvísi vinna Hrafnhildur segir töluverðan mun á því að skrifa leikrit fyrir útvarp og fyrir svið.Fréttabaðið/Valli
Verkið var leiklesið hér heima hjá mér á Listahátíð í vor, í leikstjórn Kristínar Eysteinsdóttur, og svo vann ég það áfram fyrir þessa uppfærslu í útvarpinu," segir Hrafnhildur Hagalín um leikrit sitt, Opið hús, sem Útvarpsleikhúsið sendir út á jóladag. „Það breyttist töluvert í vinnslunni og við áttum í ákveðnum díalóg um þróunina, ég og Kristín leikstjóri."

Hafa verk þín verið flutt í Útvarpsleikhúsinu fyrr? „Já, fyrir tveimur árum samdi ég verkið Einfarar fyrir nokkra eldri leikara og leikstýrði því sjálf. Þannig að ég kom reynslunni ríkari að þessari vinnu og gat hugsað verkið betur fyrir útvarpsmiðilinn af því ég þekkti hann."

Er mikill munur á því að skrifa fyrir útvarp og svið? „Já, það er talsverður munur á því. Í útvarpi þarf að hugsa allt út frá hljóði og að búa til myndir í hugum hlustenda út frá því og textanum eingöngu. Í þessu verki er húsið miðpunkturinn og það er alltaf mikið af mismunandi hljóðum í húsum, þannig að ég byggði verkið dálítið út frá því."

Um hvað fjallar verkið? „Það fjallar um fólk sem kemur að skoða hús. Þetta eru tvenn hjón, eldri hjón og yngri hjón, og svo dúkkar þarna upp líka miðaldra karlmaður. Það kemur síðan í ljós þegar líða tekur á verkið að þau tengjast öll á einn eða annan hátt."

Hallur Ingólfsson semur tónlistina. Samdi hann hana sérstaklega fyrir þetta verk? „Já, hann gerði það. Hann var ekki með okkur í vor en kom inn í á seinni stigum og samdi tónlistina sérstaklega fyrir þessa útvarpsversjón."

Eigum við svo von á sviðsverki frá þér fljótlega? „Já, vonandi. Ég er alveg á fullu að skrifa núna. Tók mér hlé frá þeim samstarfsverkefnum sem ég hef verið á kafi í undanfarin ár. Þannig að ég hef dregið mig dálítið í hlé og er að vinna að verkum sem ég hef beðið eftir að komast í talsvert lengi."

Opið hús verður flutt á Rás 1 á jóladag kl. 13.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×