Tónlist

Ocean á plötu ársins

Tónlistarmaðurinn Frank Ocean á plötu ársins samkvæmt erlendum árslistum.nordicphotos/getty
Tónlistarmaðurinn Frank Ocean á plötu ársins samkvæmt erlendum árslistum.nordicphotos/getty
Eins og venjan er á þessum árstíma eru listar yfir bestu plötur ársins byrjaðir að tínast inn hjá erlendum tímaritum og vefsíðum. Samkvæmt þeim er fyrsta hefðbundna plata bandaríska R&B-tónlistarmannsins Frank Ocean, Channel Orange, sú besta á árinu. Hún er víðast hvar á topp fimm og hjá Metacritic.com sem tekur saman alla dóma ársins er hún efst á blaði.

Þetta kemur ekki á óvart því Channel Orange fékk frábæra dóma úti í heimi og hér á landi hlaut hún einnig athygli. Fimm stjörnur hjá gagnrýnanda Fréttablaðsins bera vott um það. „Textarnir eru öðruvísi heldur en á þessari dæmigerðu r&b-plötu, tónlistin er ferskari og hugmyndaríkari og umgjörðin er sömuleiðis nýstárleg,“ sagði í dóminum.

Blúsrokkarinn Jack White, fyrrum liðsmaður The White Stripes, virðist hafa hitt í mark með sinni fyrstu sólóplötu, Blunderbuss, og bandaríski rapparinn Kendrick Lamar er í efsta sætinu hjá Pitchfork. Aðrir ofarlega á blaði eru kanadíska söngvaskáldið Leonard Cohen og áströlsku sýrurokkararnir í Tame Impala.

Fáar konur koma við sögu á árslistunum. Helst má nefna bandarísku tónlistarkonuna Fionu Apple og Grimes, sem er alter-egó hinnar kanadísku Claire Bouche.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.