Tónlist

Spilaður í Kólumbíu

Nýjasta plata Geirs kemur út bæði hérlendis og í Bandaríkjunum.
Nýjasta plata Geirs kemur út bæði hérlendis og í Bandaríkjunum.
„Þetta er plata sem er bæði að koma út hér heima og í Bandaríkjunum. Það er gríðarlegur heiður og persónulegur árangur hjá mér. Það er frábært að það skuli verða að veruleika,“ segir Geir Ólafsson um sína nýjustu plötu I"m Talking About You. Þar syngur hann lög eftir aðra flytjendur, þar á meðal Michael Jackson, Bítlana, Jóhann G. Jóhannsson og Paul Simon.

Platan kemur út í Bandaríkjunum með aðstoð Dons Randi, vinar Geirs og fyrrum píanista Franks Sinatra. Eitt lag af plötunni er einnig byrjað að hljóma í útvarpi Kólumbíu í gegnum Randi, eða Besame Mucho. Þar syngur Geir á spænsku í fyrsta sinn.

Bernie Dresel, spilar á trommur á plötunni. Hann var að sögn Geirs valinn besti bigband-trommarinn í Bandaríkjunum í fyrra. Hann hefur einnig spilað inn á þættina The Simpsons og Family Guy.- fb






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.