Tónlist

Páll Óskar hitar upp fyrir Mika

"Ég hlakka mikið til," segir Páll Óskar Hjálmtýsson sem hitar upp fyrir Mika á tónleikum hans í Silfurbergi í Hörpunni 18. desember.

"Mér skilst að það komist fyrir 1.200 manns í Silfurberginu. Þetta verða standandi tónleikar, því þetta eiga að vera stuðtónleikar. Mika vill ekki sitjandi áhorfendur og ég held að það sé alveg rakið að láta mig hita upp fyrir hann og koma liðinu í smá gír."

Spurður hvort hann sé aðdáandi söngvarans, segist Palli hafa spilað fyrstu plötu hans, Life In Cartoon Motion, "í klessu". "Svo fór plata númer tvö svolítið fram hjá mér en ég er aðeins farinn að tékka á henni núna."

Þetta verður í fyrsta sinn á löngum ferli sem Páll Óskar hitar upp fyrir annan tónlistarmann. "Einu skiptin sem ég hef verið á undan einhverjum hefur kannski verið á festivölum eins og á Airwaves sem partur af stærra prógrammi. Það verður bara hressandi að prófa eitthvað nýtt."

Palli ætlar annars að taka því rólega um þessi jól. Engin plata er að koma út með honum og engin stór verkefni í farvatninu. "Ég sagði nei við öllum jólatónleikum og öllu því brölti og er farinn að hlakka til jólanna. Ég ætla að njóta þess að vera í jólastússinu."

Miðasala á tónleika Mika hefur gengið mjög vel. Enn eru samt einhverjir miðar óseldir og fást þeir á Midi.is. - fb






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.