Tónlist

Indísveitin Alt-J vann Mercury-verðlaunin

Alt-J hlaut hin eftirsóttu Mercury-verðlaun fyrir plötuna An Awesome Wave.nordicphotos/getty
Alt-J hlaut hin eftirsóttu Mercury-verðlaun fyrir plötuna An Awesome Wave.nordicphotos/getty
Enska indísveitin Alt-J hlaut hin eftirsóttu Mercury-verðlaun fyrir sína fyrstu plötu, An Awesome Wave. Veðbankar höfðu talið sveitina líklega til árangurs og það gekk eftir. Verðlaunaféð hljóðar upp á um fjórar milljónir króna.

Aðrir sem tilnefndir voru til verðlaunanna voru Plan B, The Maccabies, Richard Hawley, Jessie Ware, Field Music og Django Django, en síðastnefnda sveitin kemur einmitt fram á Iceland Airwaves-hátíðinni í kvöld.

Meðlimir Alt-J þökkuðu foreldrum sínum fyrir að hjálpa þeim að vinna til verðlaunanna. „Við viljum þakka öllum í Alt-J-teyminu sem hafa hjálpað okkur og foreldrum okkar líka. Takk fyrir að láta okkur hafa eitthvað að gera.“ Hljómsveitin var stofnuð í háskóla í Leeds árið 2007 en er núna með bækistöðvar í háskólaborginni Cambridge í Austur-Englandi.

Enska tónlistarkonan P.J. Harvey varð í fyrra fyrsti flytjandinn til að vinna Mercury-verðlaunin tvívegis.

Meðal annarra þekktra nafna sem hafa hlotið verðlaunin eru Primal Scream, Suede, Portishead, Pulp, Franz Ferdinand, Arctic Monkeys og The xx.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.