Tónlist

Fimmtán hljómsveitir í beinni hjá KEXP

í beinni Reggísveitin Ojba Rasta verður í beinni útsendingu á KEXP.fréttablaðið/stefán
í beinni Reggísveitin Ojba Rasta verður í beinni útsendingu á KEXP.fréttablaðið/stefán fréttablaðið/stefán
Útvarpsstöðin KEXP frá Seattle sendir út beint frá tónlistarhátíðinni Iceland Airwaves og er þetta fjórða árið í röð sem hún mætir á hátíðina.

„Útsendingin okkar frá Iceland Airwaves tengir tónlistarunnendur í Seattle og um allan heim við það nýjasta og besta í tónlist um þessar mundir," sagði Kevin Cole, aðaldagskrárstjóri stöðvarinnar og umsjónarmaður þáttarins Afternoon Show. „Þessar útsendingar eru stefna okkar í hnotskurn, þ.e. að vera í fararbroddi spilunar nýrrar tónlistar."

Verkefnið er unnið í samvinnu við Iceland Naturally, KEX Hostel, Icelandair og Kimi Records. Útsendingar verða frá KEX Hostel en dagskrárgerðarfólkið Cheryl Waters og Kevin Cole kynna dagskrárliði á FM 90,3 og á Kexp.org dagana 31. október til 2. nóvember frá kl. 13 til kl. 21.

Meðal þeirra fimmtán hljómsveita sem fram koma á KEX Hostel eru Ólafur Arnalds, Ghostigital, Sóley, Ojba Rasta, Sólstafir, Úlfur Úlfur og Seattle-hipphopplistamennirnir í Shabazz Palaces og THEESatisfaction.

Of Monsters and Men og FM Belfast spiluðu á Kex Hostel í fyrra og mun síðarnefnda sveitin einnig koma fram á hátíðinni í ár.

Auk beinu útsendinganna mun KEXP taka upp um 15-20 tónlistarmyndbönd með íslenskum listamönnum víðs vegar um Reykjavíkurborg og verða þau sýnd á síðunni Kexp.org að hátíðinni lokinni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×