Tónlist

Nóra með Himinbrim

Liðsmenn Nóru fagna útkomu nýrrar plötu á Faktorý í kvöld.
Liðsmenn Nóru fagna útkomu nýrrar plötu á Faktorý í kvöld. Mynd/Ingólfur Júlíusson
Önnur plata hljómsveitarinnar Nóru, Himinbrim, kemur út í dag.

Platan var meðal annars fjármögnuð í gegnum vefsíðuna www.pledgemusic.com, þar sem fólki bauðst að heita á hana og kaupa fyrirfram.

Söfnuninni lauk þremur vikum fyrr en áætlað var.

Til að fagna býður Nóra í hlustunarteiti á Faktorý við Smiðjustíg klukkan 20.30 í kvöld.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×