Tónlist

Erlent fjölmiðlafólk 300 talsins

David Fricke, einn virtasti blaðamaður tímaritsins Rolling Stone, mætir annað árið í röð.
David Fricke, einn virtasti blaðamaður tímaritsins Rolling Stone, mætir annað árið í röð.
Um þrjú hundruð manns frá fjölmiðlum víða í heiminum verða á meðal gesta á Airwaves-hátíðinni sem hefst í Reykjavík í lok mánaðarins. Fjöldinn er álíka mikill og mætti á hátíðina í fyrra.

"Þetta er ómissandi fyrir okkur til að breiða út boðskapinn. Við erum lítið festival en stórt vörumerki. Svona umfjöllun er mikilvæg fyrir okkur til að keppa við að láta heiminn vita af okkur," segir Kamilla Ingibergsdóttir hjá Airwaves.

Meðal þeirra fjölmiðla sem eiga fulltrúa á hátíðinni í þetta sinn eru BBC Radio, bandaríska tónlistarsíðan Paste Magazine, The Independent, Vice TV, Rolling Stone með blaðamanninn David Fricke í fararbroddi, Gaffa, Berlingske Tidende, danska- og norska ríkisútvarpið og bandarísku útvarpsstöðvarnar KEXP og KCRW. Einnig mætir til landsins fólk frá Quint Magazine í Dubai, LE TV frá Kína og blaðamenn frá japönsku tímariti og vefsíðu. Rússneskir, pólskir og þýskir blaðamenn verða einnig á svæðinu.

Fólk frá hátíðum á borð við Euroconic, by:Larm, G! Festival, CMJ í New York, Spot Festival og Canadian Music Week verður einnig með augun á innlendum jafnt sem erlendum flytjendum.

Bækistöðvar erlendu gestanna verða á Hótel Plaza í Aðalstræti. "Við búumst við því að um sex þúsund manns fari í gegnum fjölmiðlamiðstöðina á Plaza og við erum að búa okkur vel undir það," segir Kamilla. - fb






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.