Tónlist

Rúmar tvo tónleikagesti í senn

Íslandsstofa og Inspired by Iceland bjóða upp á minnsti utandagskrár tónleikastað Iceland Airwaves. Guðrún Birna Jörgensen er verkefnastjóri verkefnisins.
Íslandsstofa og Inspired by Iceland bjóða upp á minnsti utandagskrár tónleikastað Iceland Airwaves. Guðrún Birna Jörgensen er verkefnastjóri verkefnisins.
„Þetta er liður í vetrarherferð Inspired by Iceland, Ísland allt árið. Þar vinnum við með ákveðin þemu og tónlist er eitt þeirra.

Við viljum ýta undir vitneskju fólks á íslenskri tónlist og teljum þetta góða leið til þess,“ segir Guðrún Birna Jörgensen verkefnastjóri Inspired by Iceland hjá Íslandsstofu um viðburðinn The smallest Iceland Airwaves off-venue.

Það sem áður var The Little House of Food verður nú minnsti utandagskrár tónleikastaður Iceland Airwaves. Húsið verður staðsett á Ingólfstorgi á meðan á hátíðinni stendur og rúmar um tvo tónleikagesti í senn. Á meðal þeirra hljómsveita sem troða upp í húsinu eru Tilbury, Hjálmar, Retro Stefson, Valdimar og Ásgeir Trausti.

Að sögn Guðrúnar Birnu hafa tónlistarmennirnir þegar skoðað aðstæður og munu stilla sér upp í samræmi við pláss. „Ég efa að allir meðlimir Retro Stefson komist fyrir inni í húsinu, en tónlistarfólkið mun stilla sér upp miðað við plássið og svo taka nokkur lög.

Flestir tóku mjög vel í þetta og fleiri vildu vera með en komust að. Það er frábært að sjá hvað íslenskir tónlistarmenn eru viljugir að taka þátt í að kynna íslenska tónlist með okkur.“

Þátttaka tónleikagesta er á tvenna vegu samkvæmt Guðrúnu Birnu; annars vegar er erlendum blaðamönnum boðið á einkatónleika og hins vegar geta erlendir ferðamenn tekið þátt í leik á samfélagsmiðlinum Facebook og unnið pláss á tónleikum. - sm






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.