Margslungin og síbreytileg Trausti Júlíusson skrifar 14. október 2012 00:01 Valgeir Sigurðsson
Tónlist. Valgeir Sigurðsson Architecture of Loss Tónlistina á Architecture of Loss samdi Valgeir Sigurðsson upphaflega fyrir samnefnt dansverk eftir Stephen Petronio. Tónlistin þótti það sterk að Valgeir vann hana áfram fyrir þessa útgáfu og bætti meðal annars við lokalaginu Gone Not Forgotten. Platan var tekin upp með nokkrum af þeim hljóðfæraleikurum sem hafa spilað inn á plötur Bedroom Community-fyrirtækisins, píanóleikaranum Nico Muhly, víóluleikaranum Nadiu Sirota, Shahzad Ismaily, sem leikur á fjölmörg hljóðfæri, og Helga Hrafni Jónssyni sem spilar á básúnu. Í tónlistinni mætast sígild hljóðfæri eins og víólan og tölvuforrituð hljóð, sem Valgeir framleiðir, oft með flottri útkomu. Það eru tíu lög, eða þættir, á plötunni. Tónlistin er mjög kaflaskipt og síbreytileg. Það skiptast á lágstemmdir kaflar og háværir, tónninn er stundum tær, stundum bjagaður. Sumir kaflarnir eru lagrænir, jafnvel melódískir, en oftar er byggð upp spenna eða stemning. Maður getur vel ímyndað sér danshreyfingar við þessa tónlist, en hún virkar samt alveg ein og óstudd. Valgeir er einn af fremstu upptökustjórum og hljóðversmönnum Íslands. Það heyrist á Architecture of Loss. Hljómurinn á henni er sérstaklega flottur, djúpur og tær. Þetta er plata sem maður nýtur að spila hátt í góðum græjum. Á heildina litið er þetta mjög flott plata sem passar inn í þann háa gæðastaðal sem við eigum að venjast frá Bedroom Community. Niðurstaða: Þriðja sólóplata Valgeirs Sigurðssonar er gæðagripur.
Mest lesið Réði ekki við sig þegar hann hitti Lopez Lífið Skelltu sér úr háloftunum niður í Hörpu Lífið Smekklegasta fólk landsins skálaði í kaffi Lífið Sigga Ózk verður Ariana Grande og flytur til Noregs Tónlist Ekki viss um að mamma hans hefði kosið hann Lífið Leyfir börnunum að sofa uppi í rúmi Lífið Fagurt einbýli í hjarta Vesturbæjar Lífið Baráttan innra með manni eins og ljós og skuggar Menning Klippt út af myndinni Lífið Þakkaði fyrir sig á íslensku Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Melódrama, morð og hæfilega mikið bótox Sunna Gunnlaugs í skugga karlrembu á djasshátíð Alien Romulus: Ungmenna Alien May December: Seint koma sumir en koma þó Sjá meira