Tónlist

"Næntís”-nostalgía á Gauknum

Rokkararnir í Dead Sea Apple spila á Gamla Gauknum.
Rokkararnir í Dead Sea Apple spila á Gamla Gauknum.
Til stendur að halda tónleika með gömlum íslenskum gruggsveitum frá tíunda áratugnum á Gamla Gauknum um miðjan desember. Staðfestar hafa verið Bone China, Dos Pilas, Quicksand Jesus, In Bloom og Dead Sea Apple.

„Þetta er hugmynd sem Finni [Guðfinnur Sölvi Karlsson] úr Quicksand Jesus og Franz [Gunnarsson] gítarleikari fengu. Þeir voru að spá í að gera þetta í september en svo var allt í einu kominn september. Menn eru orðnir gamlir og þurfa að æfa þetta dót," segir Hannes Friðbjarnarson, trommuleikari í Dead Sea Apple og Buffi. „Þetta er fínt fyrir gamla mussurokkara að koma út úr fylgsnum sínum, fá sér einn bjór og hlusta á „næntís"-bönd," segir hann. „Þetta eru bönd sem voru flest á jaðrinum og fengu ekki mikla umfjöllun í fjölmiðlum," segir hann. „Þau náðu einstaka lögum í spilun en voru alltaf dugleg að halda tónleika. Engin hljómsveitanna hefur tök á því að halda tónleika ein og sér og þess vegna er fínt fyrir menn að koma saman og taka nokkur lög." - fb






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.