Lífið

Fallegir tónlistarmenn spila hipphoppbræðing

Fallegir menn
Hljómsveitin Fallegir menn mun stíga á stokk á Faktorý í kvöld með hipphoppbræðing sinn. Sveitina skipa þekktir menn úr íslensku tónlistarlífi. Guðmundur Óskar laksdjfæaklsdjfaksdfjajsdfæ klajsdf ælaksdjf ælaksdjf æaklsdfj alæksdfj aælksdfj aæskldfj aæslkdfjasdffréttablaðið/anton
Fallegir menn Hljómsveitin Fallegir menn mun stíga á stokk á Faktorý í kvöld með hipphoppbræðing sinn. Sveitina skipa þekktir menn úr íslensku tónlistarlífi. Guðmundur Óskar laksdjfæaklsdjfaksdfjajsdfæ klajsdf ælaksdjf ælaksdjf æaklsdfj alæksdfj aælksdfj aæskldfj aæslkdfjasdffréttablaðið/anton
Árshátíð knattspyrnufélagsins KF Mjaðmar fer fram á Faktorý í kvöld. Í tilefni þess mun hljómsveitin Fallegir menn koma fram auk Prins Póló, Tilbury og FM Belfast. Fallegir menn var stofnuð í Menntaskólanum við Hamrahlíð og eiga hljómsveitarmeðlimir það allir sameiginlegt að vera vanir tónlistarmenn og fallegir ásýndum.

Hljómsveitin var stofnuð árið 2006 en hefur starfað í núverandi mynd í rúm þrjú ár. Hana skipa Unnsteinn Manuel Stefánsson úr Retro Stefson, Axel Haraldsson og Guðmundur Óskar Guðmundsson úr Hjaltalín, Atli Bollason úr Sprengjuhöllinni, Arnljótur Sigurðsson og Teitur Magnússon úr Ojba Rasta, Guðmundur Einar Sigurðarson og Aron Steinn Ásbjarnason.

Guðmundur Óskar bassaleikari vill síður skilgreina Fallega menn sem ofurgrúppu og segir örlög slíkra sveita oft sorgleg. „Það hefur ekki reynst mönnum vel að stofna „súpergrúppur" enda hljóta þær iðulega sorgleg örlög. Hljómsveitin samanstendur vissulega af mönnum úr hinum og þessum hljómsveitum, en það á við um flestar íslenskar hljómsveitir."

Að sögn Guðmundar Óskars spilar sveitin hipphoppbræðing og eru það Unnsteinn Manuel, Teitur og Guðmundur Einar sem rappa.

„Þar sem við erum allir svo uppteknir með öðrum hljómsveitum hittumst við sjaldan og þess vegna þarf maður að setja sig í ákveðnar stellingar fyrir hipphoppið. Tónlistin er handahófskennd og strákarnir rappa á mörgum tungumálum þannig ég veit ekki hvernig mætti skilgreina tónlistina betur."

Tónleikarnir hefjast klukkan 22 í kvöld og er miðaverð 1.000 krónur.

sara@frettabladid.is






Fleiri fréttir

Sjá meira


×