Tónlist

Plata Retro Stefson seld í sjö mismunandi útgáfum

Gylfi Sigurðsson, trommari Retro Stefson, á einni þeirra sjö mynda sem notaðar verða á nýju plötunni.
Gylfi Sigurðsson, trommari Retro Stefson, á einni þeirra sjö mynda sem notaðar verða á nýju plötunni.
„Ég er ótrúlega ánægður með útkomuna,“ segir grafíski hönnuðurinn Halli Civelek.

Þriðja plata Retro Stefson, sem kemur út 2. október og er samnefnd sveitinni, verður seld í verslunum með sjö mismunandi framhliðum og verður þessi útgáfa plötunnar seld í takmörkuðu upplagi. Hver framhlið verður með mynd af einum af sjö meðlimum hljómsveitarinnar. Hinar sex myndirnar verða inni í umslaginu og geta kaupendur því skipt um mynd á framhliðinni eins oft og þeir vilja.

Myndirnar tók Ari Magg í Gufunesinu í Grafarvogi, Hildur Yeoman var stílisti og um listræna stjórnun sá Halli. Hann er aðjúnkt og fagstjóri í grafískri hönnun við Listaháskóla Íslands og hefur hannað öll umslög Retro Stefson til þessa. Á ferilskrá hans eru einnig umslög með FM Belfast, Leaves og Sesari A.

„Það hentaði vel að vera með margs konar myndir sem eru bæði lifandi og litríkar. Retro Stefson er spes hljómsveit því hún hefur mjög litríkan tónlistarstíl. Það skemmtilega við tónlistina er að hún er úti um allt og alls konar en samt algjörlega Retro Stefson. Við vorum að reyna að endurspegla það,“ greinir Halli frá. „Það var frábært að vinna með Ara Magg og samvinnan við Retro Stefson hefur alltaf verið góð. Við áttum mjög skemmtilegan dag þegar við tókum þessar myndir og ég hlakka mikið til að sjá þetta á prenti.“

Auk þessarar nýstárlegu útgáfu kemur platan út í tvöföldu, veglegu vínylformi.freyr@frettabladid.is


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.