Tónlist

Rokk, ról og góðir gestir

Páll mætti á svæðið í þröngum leðurbuxum eins og sönnum rokkara sæmir en Gunnar Bjarni var klæddur hippalegri svartri gæru.
Páll mætti á svæðið í þröngum leðurbuxum eins og sönnum rokkara sæmir en Gunnar Bjarni var klæddur hippalegri svartri gæru.
Tuttugu ár eru liðin síðan rokksveitin Jet Black Joe sló í gegn með sinni fyrstu plötu. Af því tilefni hélt hún tvenna tónleika í Gamla bíói á föstudagskvöld.

Söngvarinn Páll Rósinkranz og gítarleikarinn Gunnar Bjarni Ragnarsson eru einu upphaflegu meðliminir sem eru enn eftir í bandinu.

Þeim til halds og trausts eru tvíburabræðurnir Kristinn og Guðlaugur Júníussynir á trommum og bassa og Snorri Snorrason á hljómborð og Hammond en hann vann Idol hér um árið.

Páll mætti á svæðið í þröngum leðurbuxum eins og sönnum rokkara sæmir en Gunnar Bjarni var klæddur hippalegri svartri gæru. Báðir voru þeir í góðu formi á tónleikunum og kunnu sannarlega enn að rokka.

Tónleikarnir hófust á Take Me Away, upphafslagi fyrstu plötunnar, og eftir það hjóluðu þeir í öll sín vinsælustu lög, þar á meðal Rain, Starlight og Higher and Higher. Lárus Grímsson spilaði þverflautusólóið þegar síðastnefnda lagið var tekið upp 1994 en var að stíga í fyrsta sinn á svið með sveitinni þetta kvöld.

Miðað við hve sólóið er stór hluti af þessu einu vinsælasta lagi Jet Black Joe kemur á óvart að sveitin hafi ekki notið krafta hans oftar. Lárus stóð sig einkar vel.

Strax eftir hlé var röðin komin að þremur órafmögnuðum lögum, þar á meðal einu nýju og lofaði það góðu. Í framhaldinu fór sveitin í tvö tökulög, Knockin" on Heaven"s Door og Lenny Kravitz-lagið Are You Gonna Go My Way en Jet Black Joe hitaði upp fyrir hann 1993.

Sigríður Guðnadóttir steig einnig á svið og söng Freedom og sýndi að hún hefur engu gleymt. Eftir uppklapp var Higher and Higher endurtekið með Lárusi með í för. Þá voru allir staðnir upp í salnum og sungu og klöppuðu með. Góður endir á fínum tónleikum.

Freyr Bjarnason






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.