Lífið

Í fótspor Kevin Bacon og Benicio del Toro

Í fótspor frægra Ólöf Jara hefur leiklistarnám í Circle in the Square Theatre School í New York í næstu viku. Þar fetar hún meðal annars í fótspor Kevins Bacon.Fréttablaðið/Gunnar
Í fótspor frægra Ólöf Jara hefur leiklistarnám í Circle in the Square Theatre School í New York í næstu viku. Þar fetar hún meðal annars í fótspor Kevins Bacon.Fréttablaðið/Gunnar
„Ég er ótrúlega heppin með hvað ég á mikið af góðu vinum sem eru tilbúnir til að koma og hjálpa mér. Sérstaklega er heppilegt hvað ég á mikið af hæfileikaríkum vinum," segir Ólöf Jara Skagfjörð sem heldur kveðjutónleika í kvöld þar sem fjöldi þekktra listamanna kemur fram.

Ólöf Jara flytur til New York í næstu viku þar sem hún hefur leiklistarnám í Circle in the Square Theatre School. Þar fetar hún í fótspor ekki ómerkari manna en Kevins Bacon, Philips Seymour Hoffman og Benicio del Toro, en þeir gengu í þennan sama skóla sem hefur verið starfandi frá árinu 1963 og er í beinu sambandi við leikhús á Broadway. „Þetta er tveggja ára nám og planið er að klára það og sjá svo hvað gerist. Kannski komum við svo bara aftur heim en við höldum öllu opnu," segir Ólöf Jara. Kærastinn hennar, Þórður Gunnar Þorvaldsson, fer einnig í skóla úti og ætlar að læra upptökustjórn og hljóðverkfræði.

Þau Ólöf Jara og Þórður Gunnar ætla að kveðja landann á Gamla Gauknum í kvöld og verður dagskráin ekki af verri endanum. Meðal þeirra sem þenja raddböndin verða þau Heiða Ólafs, Magni, Pétur Örn og Matti Matt og Ævar Þór Benediktsson sér um að kynna liðið til leiks.

„Svo verða mamma og pabbi þarna auk þess sem við Gunnar flytjum nokkur lög og hljómsveitin okkar Fönix," segir Ólöf Jara en eins og flestir vita er hún dóttir Valgeirs Skagfjörð og Guðrúnar Gunnarsdóttur. „Svo verður bara létt og þægileg stemning þarna og öllum velkomið að koma upp á svið og syngja," segir hún og hvetur alla til að kíkja inn, en aðgangseyririnn er litlar 1.000 krónur.- trs






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.