Lífið

Ekki alltaf nakinn

shia labeouf Leikarinn segist ekki vera haldinn sýniþörf.
shia labeouf Leikarinn segist ekki vera haldinn sýniþörf.
Leikarinn Shia LaBeouf segist ekki vera haldinn sýniþörf þrátt fyrir að hafa komið nakinn fram í myndbandi Sigur Rósar, Fjögur píanó, og þrátt fyrir að vera tilbúinn til að stunda alvöru kynlíf í nýjustu mynd Lars Von Trier, The Nymphomaniac.

Hinn 26 ára leikari segist í samtali við AP-fréttastofuna „ekki vera búinn að ákveða að vera ávallt nakinn" og að hann „hafi ekki byrjað að leika til að verða klámmyndaleikari".

„Við vorum bara að leika ákveðnar persónur," sagði hann um hlutverk sitt í myndbandi Sigur Rósar. Hann segist hafa fengið góð viðbrögð við því og þess vegna er hann enn sannfærðari en áður um að hann hafi staðið sig vel.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.