Tónlist

Spennandi tímar hjá RetRoBot

„Þetta er fyrsta tónleikaferðin okkar til útlanda svo við erum mjög spenntir," segir Daði Freyr Pétursson, meðlimur hljómsveitarinnar RetRoBot sem er nú stödd á tónleikaferðalagi í Hollandi.

RetRoBot sigraði Músíktilraunir í lok mars og hefur verið á fleygiferð síðan. „Við erum búnir að spila um hverja helgi frá því við unnum og stundum tvisvar eða þrisvar um helgi," segir Daði Freyr og bætir við að líf þeirra hafi því breyst mikið frá því þeir báru sigur úr býtum í Austurbæ.

Þeir verða í Hollandi fram yfir helgi og spila á þremur stöðum, þar á meðal á Westerpop-tónlistarhátíðinni í Delft.

Ferðin er hluti af sigurverðlaunum þeirra úr Músíktilraunum. Ævintýrið er þó bara rétt að byrja því fram undan hjá þeim eru ferðir bæði til Noregs og Póllands nú á haustmánuðum auk þess sem þeir stefna á útgáfu EP-plötu á næstu dögum.

„Við erum svo að semja stóra plötu í rólegheitum, okkur liggur ekkert á heldur viljum við bara gera það almennilega," segir Daði Freyr.

Sem sigurvegarar Músíktilrauna hefur hljómsveitin stór spor til að fylla í. Sigurvegarinn frá því í fyrra, hljómsveitin Samaris, hefur verið að gera gríðarlega góða hluti og Of Monsters and Men sem sigruðu árið 2010 eru að leggja heiminn að fótum sér um þessar mundir.

- trs






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.