Tónlist

Hrærð yfir viðbrögðum fólks

Steinunni Camillu gengur vel með skartgripalínu sína.
Steinunni Camillu gengur vel með skartgripalínu sína.
Steinunn Camilla Sigurðardóttir, söngkona í The Charlies, hóf nýverið að hanna skartgripi undir nafninu Carma Camilla. Henni var boðin þátttaka á sölusýningu í Los Angeles í síðustu viku auk þess sem hún sérhannaði skartgrip fyrir söngkonuna Natöshu Bedingfield.

„Móttökurnar hafa verið frábærar. Þetta er búið að ganga mun betur en ég þorði að vona og ég er eiginlega bara hrærð, stolt og ánægð. Ég er búin að leggja mikla vinnu í þetta og þessi góðu viðbrögð hvetja mig til að gera enn betur," segir Steinunn Camilla sem á ekki langt að sækja hæfileikana því foreldrar hennar eiga skartgripaverslunina Gull og silfur.

Steinunn býr og starfar í Los Angeles og segir nokkra þekkta einstaklinga hafa sýnt hönnuninni áhuga. Hún sérhannaði meðal annars skart fyrir Natöshu Bedingfield, söngvarann Justin Tranter úr sveitinni Semi Precious Weapons og bresku X-Factor stjörnuna Katie Waissel.

Steinunni Camillu var boðið á aðra sölusýningu í vikunni og þar mun hún einnig koma fram með hljómsveit sinni, The Charlies. Auk þess fékk hún boð um þátttöku á sölusýningu sem verður á Standard-hótelinu í haust. „Ég verð svo með skartið í myndatökum á næstunni og er mjög spennt að sjá hvernig það kemur út."- sm






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.