Tónlist

Hæggeng sveimtónlist í djassstíl

Þorkell Atlason og Pan Thorarensen unnu í sameiningu að fyrstu plötunni sem gefin er út undir merkjum Extreme Chill. Hér heldur Pan á syni sínum, Mikael, en þeir feðgarnir prýða plötuumslagið.
Þorkell Atlason og Pan Thorarensen unnu í sameiningu að fyrstu plötunni sem gefin er út undir merkjum Extreme Chill. Hér heldur Pan á syni sínum, Mikael, en þeir feðgarnir prýða plötuumslagið. Fréttablaðið/Valli
„Um er að ræða hæggenga og stemningsfulla sveimtónlist í aflöppuðum djassstíl," segir Pan Thorarensen, eða raftónlistarmaðurinn Beatmakin Troopa, inntur eftir lýsingu á tónlistinni á nýjustu plötu sinni, If You Fall You Fly. Fjögur ár eru liðin frá útgáfu breiðskífu hans, Search for Peace, en hún fékk verðskuldaða athygli í raftónlistarheiminum hér og erlendis.

Plötuna vann Pan í samvinnu við Þorkel Atlason. „Það var eiginlega bara slys hvernig við fórum að vinna saman. Hann er vinur pabba míns og við höfum rætt lengi að gera eitthvað saman. Svo gerðist þetta bara óvænt," segir hann.

Útgáfan er fyrsta platan sem gefin er út undir merkjum Extreme Chill, sem stendur að baki raftónlistarhátíðinni Extreme Chill – Undir Jökli og reglulegum kvöldum á Kaffibarnum. Þeir ætla að reyna að hafa um tíu listamenn á sínum snærum og gefa út geisladiska og vínylplötur. Platan er einnig gefin út af 3angle Production.

Útgáfutónleikar verða á Kaffibarnum 8. ágúst, á fyrsta kvöldi Extreme Chill eftir tónlistarhátíð sína í lok júní, og fæst platan í 12 Tónum og Smekkleysu.- hþt






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.