Lífið

Pink saknar viskísins

Hamingjusöm Pink segir móðurhlutverkið algjöra sælu.
Nordicphotos/getty
Hamingjusöm Pink segir móðurhlutverkið algjöra sælu. Nordicphotos/getty
Söngkonan Pink á dótturina Willow Sage með mótorkrosskappanum Carey Hart og segist hún ánægð með lífið eins og það er núna. Dóttirin fæddist í júní í fyrra og síðan þá hefur söngkonan helgað sig móðurhlutverkinu.

„Áður einkenndist líf mitt af viskíi, tárum og sígarettum. Núna er það fullt af fallegum barnstárum, engum sígarettum og kúkableium. Algjör sæla. Ég sakna viskísins, en ekki tóbaksins," sagði söngkonan.

Ný plata með söngkonunni er væntanleg í september og ber sú titilinn The Truth About Love.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.