Lífið

Gamla gufan poppuð upp

Þorvaldur Davíð Kristjánsson, leikari Þorvaldur Davíð
Þorvaldur Davíð Kristjánsson, leikari Þorvaldur Davíð
Leikarinn Þorvaldur Davíð Kristjánsson og rithöfundurinn Ragnar Jónasson munu lífga upp á Gufuna í sumar með hressu viðtalsþáttunum Að apa og skapa en þar ætla félagarnir að ræða við efnilega og skapandi listamenn.

Fyrsti þátturinn fór í loftið í gær kl. 16.05 og var viðmælandi píanóleikarinn Víkingur Heiðar Ólafsson, sem er útskrifaður úr hinum virta Julliard skóla í New York líkt og Þorvaldur sjálfur.

Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins mættu þáttastjórnendur inn á skrifstofu til Sigrúnar Stefánsdóttur dagskrárstjóra og báru undir hana hugmyndina sem hún tók fagnandi hendi.

- hþt






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.