Tíska og hönnun

Vel heppnuð tískuvika

Sruli Recht sýndi herrafatalínuna The Circumsolar á tískuvikunni í París fyrir skemmstu. Hann hlaut mikið lof fyrir og var boðið að taka aftur þátt á næsta ári.
Sruli Recht sýndi herrafatalínuna The Circumsolar á tískuvikunni í París fyrir skemmstu. Hann hlaut mikið lof fyrir og var boðið að taka aftur þátt á næsta ári.
Tískusýning hönnuðarins Sruli Recht var í fyrsta sinn liður af opinberri dagskrá herratískuvikunnar í París á dögunum. Sruli sýndi á sama tíma og tískuhús á borð við Issey Miyake, Pierre Cardin, Dior, Galliano, Hermés, Luis Vuitton og Rick Owens.

Að sögn Sruli gekk sýningin vonum framar enda hafði hann og samstarfsfólk hans lagt ómælda vinnu í undirbúningi hennar. Sýningin var einungis ætluð kaupendum og fjölmiðlum og bættust tíu nýir kaupendur í hóp þeirra tuttugu og þriggja sem fyrir eru. Meðal þeirra er sóttu sýninguna voru Armand Hadida, sem kynnti Parísarbúum fyrir Prada og Dolce & Gabbana á níunda áratugnum, og kaupendur frá Darklands og Saks Fifth Avenue auk blaðamanna frá GQ, Indesign, Vogue, Another Man og La Couture.

„Okkur var boðið að taka aftur þátt á næsta ári og var skipulagsnefndin mjög hrifin af allri umgjörð sýningarinnar og línunni sjálfri og vildi endilega hafa okkur með aftur," segir Sruli sem sýndi um tuttugu heildarklæðnaði á sýningunni sem fór fram í gömlu kauphöll Parísar. Línan nefnist The Circumsolar og er fjórða herrafatalínan sem hönnuðurinn sendir frá sér.

- sm






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.