Tíska og hönnun

Karl Bretaprins verður tískuspekingur

Karl Bretaprins er tískuskríbent í júlíútgáfu breska GQ-tímaritsins. 
Nordicphotos/getty
Karl Bretaprins er tískuskríbent í júlíútgáfu breska GQ-tímaritsins. Nordicphotos/getty
Það er enginn annar en Karl Bretaprins sem gefur karlmönnum tískuráðleggingar í júlíútgáfu breska GQ-tímaritsins. Karl hefur löngum verið ötull talsmaður breskrar fatahönnunar en prinsinn var í vor kosinn einn af bestu klæddu mönnum Bretlands af lesendum GQ.

Ég verð að viðurkenna að það koma mér mikið á óvart að vera kosinn einn af best klæddu karlmönnunum af blaðinu. Það er ekki langt síðan ég var kosinn sá verst klæddi af einhverjum öðrum,? segir Karl en hann vill meina að mikilvægast sé að klæðast fötum sem manni líður vel í.

Karl slær á létta strengi í pistlinum og gerir grín að sjálfum sér en hann sést gjarna klæðast tvíhnepptum jakkafötum á opinberum vettvangi. Þannig er það með tvíhnepptu jakkafötin, sem margir vilja meina að séu ekki í tísku, og geri ég ráð fyrir að þau séu talin gamaldags núna. Einhver spekingur sagði einhvern tímann að fatastíll minn væri hinsegin, eitthvað sem ruglaði mig í ríminu, og ég er ennþá óviss hvort þetta hafi verið meint sem hrós.?

Karl Bretaprins er hrifinn af klæðskerasniðnum fötum og fallegu handbragði. Jakkaföt úr sterkum og endingargóðum efnum eru í uppáhaldi enda vill prinsinn að jakkaföt sín líti vel út allan daginn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×