Tónlist

Gítar Skálmaldar boðinn upp

„Við þungarokkararnir getum líka látið gott af okkur leiða," segir Þráinn Árni Baldvinsson úr rokksveitinni Skálmöld.

Handsmíðaður gítar af tegundinni Fender sem Þráinn ætlar að spila á í sumar, meðal annars í Þýskalandi og á hátíðinni Eistnaflugi, verður seldur á uppboði í á tónleikunum Rokkjötnar í Kaplakrika í september. Allur ágóðinn rennur til samtakanna Blátt áfram. Listakonan Ýrr Baldursdóttir tók að sér að skreyta gítarinn endurgjaldslaust.

„Hún fílar Skálmöld og hún var mjög ánægð með að fá að skreyta gítarinn í tengslum við það sem við erum að gera," segir Þráinn. Á gítarnum verða tilvísanir í plötuna Baldur og væntanlega plötu Skálmaldar sem fjallar um börn Loka.

Hljóðfærahúsið og Fender gefa gítarinn en verkefnið er unnið í samstarfi við Tuborg. „Mér finnst þetta ótrúlegur heiður. Það er svolítið sérstök tilfinning að einhver vilji græja fyrir mann gítar og síðan bjóða hann upp," segir Þráinn.

„Við ætlum að safna fyrir gott málefni og ef einhvern virkilega vantar gítar þá er algjörlega málið að bjóða í þennan sérhannaða gítar. Við létum græja hann í Bandaríkjunum og eftir að ég prófaði hann vildi ég ekki sleppa honum. Ætli ég verði ekki að bjóða sjálfur í hann."

- fb






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.