Tónlist

Ólýsanleg stemning á Hellfest

Jens Ólafsson, söngvari Brain Police, stendur á sviðinu fyrir framan áhorfendaskarann á Hellfest.
Jens Ólafsson, söngvari Brain Police, stendur á sviðinu fyrir framan áhorfendaskarann á Hellfest.
„Stemningin var alveg ólýsanleg. Við vart trúðum okkar augum né eyrum, þetta gekk svo vel," segir Jón Björn Ríkharðsson, eða Jónbi, trommari í Brain Police.

Rokkararnir eru nýkomnir heim eftir spilamennsku á Hellfest í Frakklandi, sem er ein vinsælasta þungarokkshátíð Evrópu. Þeir spiluðu í þrjú þúsund manna tjaldi sem var fullt út úr dyrum. Þetta voru fjölmennustu tónleikar sem Brain Police hefur spilað á erlendis en á meðal þekktra sveita sem spiluðu á hátíðinni voru Guns N'Roses, Ozzy Osbourne og Mötley Crüe.

Aö sögn Jónba gekk hátíðin mjög vel fyrir sig þrátt fyrir mikinn mannfjölda, eða um níutíu þúsund gesti. „Þarna voru aldrei kýtingar eða slagsmál og nauðganir er eitthvað sem fólk veit ekki einu sinni hvað er á þessum hátíðum. Þarna er fólk bara að skemmta sér og ég held að Íslendingar mættu fara meira á svona erlendar hátíðir og sjá hvernig þetta er gert."

Hann telur að Brain Police hafi eignast fullt af nýjum aðdáendum með spilamennsku sinni. „Miðað við „lækin" á Facebook-síðunni okkar þá höfum við gert eitthvað gott. Við náðum að selja slatta af plötum og bolum og ég held að við eigum eftir að fara þarna aftur."

Fram undan hjá rokkurunum, sem nýlega sneru aftur eftir nokkurra ára hlé, er hátíðin Stoned From the Underground í Þýskalandi um miðjan júlí. Í október fer hún svo á þriggja vikna tónleikaferð um Evrópu. - fb






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.