Tíska og hönnun

Börn í D&G

Domenico Dolce og Stefano Gabbana.
Domenico Dolce og Stefano Gabbana.
Ítalska, litríka hönnunartvíeykið Dolce & Gabbana, það er Domenico Dolce og Stefano Gabbana, sýna fyrstu barnafatalínuna sína í næsta mánuði. Fötin eru ætluð börnum frá fæðingu allt til tíu ára aldurs.

„Við tókum viðtöl við mæður því línan verður að vera praktísk. Við lærðum fullt af því, til dæmis að krakkar vilja ekki að eitthvað þrengi að þeim,“ segir Domenico, en þeir segjast báðir hafa verið frekar fáfróðir um heim barna.

Línan samanstendur af dagfatnaði, nærfatnaði, sundfötum, fylgihlutum og skófatnaði og mun eflaust vera í skrautlegri kantinum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×