Lífið

Erfitt að fá hlutverk

kiefer sutherland Leikarinn átti erfitt með að fá góð hlutverk eftir að 24 lauk göngu sinni.
kiefer sutherland Leikarinn átti erfitt með að fá góð hlutverk eftir að 24 lauk göngu sinni.
Kiefer Sutherland segist hafa átt erfitt með að finna góð hlutverk eftir að hafa leikið í sjónvarpsþáttaröðinni vinsælu 24. Hinn 45 ára leikari fer núna með hlutverk í dramaþáttunum Touch.

„Ég gat ekki valið úr mörgum hlutverkum. Það kom mér dálítið á óvart," sagði Sutherland við The Hollywood Reporter. Hann ætlaði ekki að leika strax aftur í sjónvarpsþáttum eftir að 24 lauk göngu sinni.

„24 var ótrúleg reynsla en ég ætlaði ekki að snúa aftur í sjónvarp svo fljótt."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.