Tónlist

Múgsefjun notar kirkjuorgel á nýrri plötu

Ný plata hljómsveitarinnar Múgsefjunar er með meira af rokki og róli en sú síðasta og minna af harmonikku og kassagítar.
Ný plata hljómsveitarinnar Múgsefjunar er með meira af rokki og róli en sú síðasta og minna af harmonikku og kassagítar.
Sala á nýrri plötu hljómsveitarinnar Múgsefjunar hefst á netinu í dag. Platan er svo væntanleg í verslanir 11. júní. Um er að ræða aðra plötu hljómsveitarinnar en sú fyrsta, Skiptar skoðanir, kom út árið 2008.

Sveinn Ingi Reynisson harmonikkuspilari, hljómborðsleikari og söngvari hljómsveitarinnar segir nýju plötuna á margan hátt ólíka þeirri síðustu. „Það er aðeins meira rokk og ról á þessari plötu og minna um harmonikku og kassagítar. Hún er að vissu leyti tilraunakenndari því við notust töluvert við kirkjuorgel sem er nýlenda í poppinu,“ segir hann. Þrjú lög af plötunni eru þegar komin í útvarpsspilun og hafa fengið góð viðbrögð en platan hefur verið í vinnslu í þrjú ár. „Góðir hlutir gerast hægt hjá okkur í Múgsefjun en við erum allir í vinnu og námi og höfum því takmarkaðan tíma til að hella okkur í tónlistina,“ segir Sveinn Ingi. Strákarnir munu fagna útgáfunni með tónleikum í Fríkirkjunni 21. júní. „Þetta verða veglegir tónleikar sem enginn má láta framhjá sér fara. Við munum notast við orgelið í kirkjunni og umlykja áheyrendur úr öllum áttum,“ segir Sveinn Ingi.

Múgsefjun hefur verið starfandi í einhverri mynd frá árinu 2004 en hefur haldist óbreytt frá því að síðasta plata kom út. Auk Sveins skipa hljómsveitina Björn Heiðar Jónsson, Brynjar Páll Björnsson, Eiríkur Fannar Torfason og Hjalti Þorkelsson.

Hægt er að nálgast plötuna á síðunum tonlist.is, gogoyoko.com og mugsefjun.is.

- trs






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.