Tíska og hönnun

Nýtt andlit Material Girl

Georgia May Jagger er nýtt andlit fatalínu í eigu Madonnu og Lourdes Leon, dóttur söngkonunnar.
Georgia May Jagger er nýtt andlit fatalínu í eigu Madonnu og Lourdes Leon, dóttur söngkonunnar.
Georgia May Jagger, dóttir tónlistarmannsins Micks Jagger og fyrirsætunnar Jerry Hall, er nýtt andlit fatalínunnar Material Girl sem hönnuð er af Madonnu og dóttur hennar, Lourdes Leon.

„Það er mikill heiður að vera valin af Madonnu og Lourdes sem andlit Material Girl. Ég hef ávallt dáðst að fatastíl Madonnu og er upp með mér að fá loks tækifæri til að vinna með henni," sagði Jagger um hið nýja starf sitt.

Jagger er þriðja stúlkan sem gegnir þessu hlutverki og fetar þar með í fótspor Taylor Momsen og Kelly Osbourne.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×