Tíska og hönnun

Hannar tæknileg föt

Nicola Formichetti vill hanna föt með sólarrafhlöðum undir eigin nafni.
Nicola Formichetti vill hanna föt með sólarrafhlöðum undir eigin nafni.
Fatahönnuðurinn Nicola Formichetti hyggst hanna fatalínu undir eigin nafni. Formichetti vakti fyrst athygli sem stílisti Lady Gaga og sem yfirhönnuður tískumerkisins Mugler.

Formichetti sagði frá áformum sínum í WWD.com og þar kom fram að hann ætli sér að hanna fatnað með innbyggða sólarrafhlöðu sem má meðal annars nota til þess að hlaða farsíma.

„Við höfum notað sömu efnin og sömu tæknina við fatahönnun í hundrað ár. Nú er kominn tími fyrir eitthvað nýtt," sagði Formichetti.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×