Tónlist

Þakkar fyrir stuðninginn

Ad-Rock, eða Adam Horovitz, úr Beastie Boys hefur þakkað aðdáendum hljómsveitarinnar fyrir stuðninginn eftir að félagi hans, Adam Yauch, féll frá. Hann lést á föstudaginn, 47 ára, eftir þriggja ára baráttu við krabbamein.

„Eins og þið getið ímyndað ykkur eru menn í miklu uppnámi," skrifaði Ad-Rock á bloggsíðu Beastie Boys. „En mig langar að þakka öllum vinum okkar og fjölskyldu fyrir ást og stuðning. Ég er ánægður með að ástin sem Yauch dreifði út í heiminn sé að koma aftur til hans. Takk fyrir." Meðal þeirra sem hafa spilað til heiðurs Yauch undanfarið eru Coldplay og Red Hot Chili Peppers.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.