Tíska og hönnun

Anna Dello Russo hannar fyrir H&M

Ritstjórinn Anna Dello Russo ætlar að hanna skemmtilega fylgihlutalínu fyrir HM sem er væntanleg í verslanir 4. október næstkomandi.
Ritstjórinn Anna Dello Russo ætlar að hanna skemmtilega fylgihlutalínu fyrir HM sem er væntanleg í verslanir 4. október næstkomandi. Nordicphotos/getty
Ritstjórinn og tískufyrirmyndin Anna Dello Russo er að fara í samstarf við sænsku verslanakeðjuna Hennes&Mauritz.

Dello Russo ætlar að hanna fylgihlutalínu sem kemur í valdar verslanir þann 4. október.

„Ég er mjög spennt. Mig langar að búa til fylgihluti og skartgripi sem erfitt er að finna annars staðar. Sem stílisti þá veit ég fylgihlutir geta skipt lykilmáli þegar maður er að klæða sig. Markmiðið með þessari línu verður að allir geti skemmt sér og breytt venjulegum degi í frábæran tískudag," segir Dello Russo sem er stílisti, tískuritstjóri og listrænn hönnuður japanska Vogue.

Litríkur fatastíll og óvanalegar samsetningar hafa gert Dello Russo að eftirlæti götutískuljósmyndara út allan heim sem elta hana á röndum með myndavélina að lofti.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×