Tónlist

Bjuggu til teknó í frístundum

Ólafur Arnalds og Janus Rasmussen úr Bloodgroup hafa nýlokið sínu fyrsta tónleikaferðalagi með teknóhljómsveit sína, Kiasmos. Um þrenna tónleika í Þýskalandi var að ræða og gengu þeir fyrstu, sem voru í Hamborg á fimmtudaginn, mjög vel. Þeir síðustu voru í Dresden á laugardagskvöld.

„Þessi hljómsveit var stofnuð fyrir löngu síðan. Við erum góðir vinir og vorum alltaf að leika okkur að búa til teknó í frístundum okkar. Stundum vorum við að spila sem plötusnúðar í partíum hjá vinum okkar en þetta var aldrei gert af neinni alvöru," segir Ólafur, sem er mjög spenntur fyrir þessu hliðarverkefni sínu.

Breska útgáfufyrirtækið Erased Tapes, sem hefur Ólaf á sínum snærum, hefur þegar gert samning við Kiasmos og stefnan hefur verið sett á nýja plötu.

Ólafur er með mörg járn í eldinum. Hann hélt nýverið sína 300. sólótónleika þegar hann var á tónleikaferð um Evrópu og hann hefur einnig verið að semja kvikmyndatónlist, nú síðast fyrir The Hunger Games, eins og Fréttablaðið greindi nýlega frá. -fb






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.