Tónlist

Nýtt lag á þessu ári

Söngkonan Adele ætlar að gefa út nýtt lag á þessu ári.
Söngkonan Adele ætlar að gefa út nýtt lag á þessu ári.
Adele ætlar að gefa út nýtt lag á þessu ári og kemur það líklega út í lok ársins. Hún segir að það fari allt eftir því hversu fljót hún er að semja önnur lög.

Söngkonan vinsæla vill ekki lofa neinu varðandi nýja plötu og segir að aðdáendur sínir verði einfaldlega að vera þolinmóðir. „Ef ég myndi ekki semja sjálf lögin mín þá kæmi platan örugglega út í næstu viku,“ sagði hún við frönsku útvarpsstöðina NRJ. „Ég verð að taka mér smá hvíld og njóta lífsins. Það liðu tvö ár á milli fyrstu tveggja platnanna og ætli það verði ekki svipað í þetta sinn.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.