Lífið

Fox gæti verið ólétt

Möguleg fjölgun Megan Fox gæti átt von á sínu fyrsta barni.
nordicphotos/getty
Möguleg fjölgun Megan Fox gæti átt von á sínu fyrsta barni. nordicphotos/getty
Leikkonan Megan Fox er sögð eiga von á sínu fyrsta barni. Fox giftist leikaranum Brian Austin Green árið 2010 en þau hafa verið saman í sex ár.

„Þau eru himinlifandi en hafa aðeins sagt sínum nánustu frá. Megan hefur fullorðnast mikið á síðustu árum, fyrst hugsaði hún aðeins um frama sinn en núna setur hún fjölskylduna í fyrsta sæti," hafði tímaritið Star eftir vini parsins.

Green á tíu ára gamlan son frá fyrra sambandi og hefur Fox oft talað um hversu gefandi það sé að hafa barn á heimilinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.