Tónlist

Safnplata frá Bjartmari í sumar

Bjartmar gefur út safnplötu í sumar í tilefni sextugsafmælis síns.
Bjartmar gefur út safnplötu í sumar í tilefni sextugsafmælis síns.
„Það er kominn tími á þetta," segir tónlistarmaðurinn Bjartmar Guðlaugsson. Safnplata með 60 til 70 af hans bestu lögum verður gefin út 13. júní í tilefni sextugsafmælis hans þann sama dag. „Við byrjuðum að pæla í þessu eftir áramótin og ætlum að gera þetta í samvinnu við góða menn," segir Bjartmar sem hefur samið lög á borð við Týnda kynslóðin, Súrmjólk í hádeginu og Fimmtán ára á föstu.

Þrátt fyrir að sextugsafmælið nálgist segist hann aldrei hafa verið í eins góðu formi. „Ég var fótbrotinn í 27 ár og kominn í stellingar um að þetta væri búið að vera. Svo fékk ég heilsuna og þá fór heilinn í gang. Það kom snillingur og hjálpaði mér og þegar maður fær heilsuna aftur þakkar maður fyrir hana hverja einustu mínútu sem maður á eftir lifað. Ég er fullur af ástríðu, bæði í ljóðum, lögum og málverkum."

Bjartmar lagði nýverið grunn að tveimur nýjum lögum með hljómsveit sinni Bergrisarnir og verða þau gefin út á næstunni. Þau verða á næstu plötu sveitarinnar, sem hugsanlega kemur út fyrir næstu jól. Fyrsta plata Bjartmars og Bergrisanna, Skrýtin veröld, kom út fyrir jólin 2010 við mjög góðar undirtektir. Hún seldist í þúsundum eintaka og fékk góða dóma, þar á meðal fjórar stjörnur hér í Fréttablaðinu.

„Það gefur manni innblástur og kraft þegar platan manns fær svona góðar móttökur. Það hjálpar manni að halda ástríðunni fyrir verkefninu," segir Bjartmar, sem er himinlifandi með hljómsveitina sína sem er skipuð þeim Agli Erni Rafnssyni, Birki Rafni Gíslasyni og Halldóri Warén. „Ég er rosalega ánægður með þessa spilara."-fb






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.