Tíska og hönnun

Hvítt og rautt áberandi á Óskarnum

Besta leikkonan Meryl Streep og besti leikarinn Jean Dujardin fögnuðu styttunum saman. Meryl Streep var í kjól frá Lanvin.
Besta leikkonan Meryl Streep og besti leikarinn Jean Dujardin fögnuðu styttunum saman. Meryl Streep var í kjól frá Lanvin.
Á sunnudagskvöldið fór fram einn af hápunktum kvikmyndaiðnaðarins, sjálf Óskarsverðlaunin 2012. Kjólar kvöldins voru misfagrir að vanda en litirnir rauður, hvítur og svartur voru áberandi.

Gwyneth Paltrow, Michelle Williams og Rooney Mara mættu í afar fögrum síðkjólum en kærasta George Clooney, Stacy Kiebler, kom klædd í stíl við Óskarsstytturnar, í gullituðum kjól frá Marchesa, við misjafnar undirtektir tískuspekinga.

Smellið á myndina til að fletta myndasafninu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.