Lífið

Ánægður með Gervais

Ricky Gervais vakti mikla lukku sem kynnir á Golden Globe.
Ricky Gervais vakti mikla lukku sem kynnir á Golden Globe. nordicphotos/getty
Paul Telegdy, forstjóri sjónvarpsstöðvarinnar NBC, er mjög ánægður með frammistöðu grínistans Rickys Gervais sem kynnis á Golden Globe-verðlaununum.

„Mér fannst hann hitta í mark. Hann mætti þarna, var hann sjálfur og skemmti sér vel. Hann fékk líka stuðning stærstu stjarnanna. Ég hló allan tímann,“ sagði Telegdy, sem vill glaður fá Gervais aftur sem kynni fjórða árið í röð.

Gervais var sjálfur ánægður með hvernig til tókst en virðist ekki ætla að endurtaka leikinn. „Núna er ég pottþétt hættur. Það er nóg að gera þetta þrisvar sinnum.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.